Hallgerðargata 24 og 26

Fasteignir

Fasteignaumsjón og nýframkvæmdir

Enn bætast fasteignir í safnið

Félagið vinnur að hagsmunum núverandi og verðandi félagsmanna og tryggir umsjón, viðhald, endurnýjun og fjölgun fasteigna með hagkvæmum hætti. Með því að gerast félagsmaður í Búseta geta áhugasamir eignast búseturétt í fjölbreyttri flóru fasteigna sem er að finna í öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.

Íbúðagerðir

Staðsetning íbúða eftir póstnúmerum og sveitarfélögum

Búseti á íbúðir í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu sem endurspegla fjölbreytileikann, ekki síður en íbúðagerðirnar. Með nýbyggingarframkvæmdum við Hallgerðargötu og Eirhöfða telur fasteignasafn Búseta vel yfir 1.400 íbúðir.

Sala búseturétta og útleiga leiguíbúða

Á árinu 2023 gekk vel að fjölga í fasteignasafni Búseta. Við bættust 20 nýjar íbúðir við Maríugötu í Urriðarholti Garðarbæjar. Jafnframt tókust samningar við leigufélagið Heimstaden um kaup á 133 íbúðum í Bryggjuhverfi Reykjavíkur. Myndin hér að neðan sýnir aukin umsvif milli ára. Á árinu 2023 skrifuðu 145 einstaklingar undir samninga við Búseta og dótturfélagið, Leigufélag Búseta.

Byggingarsvið

Viðhaldi og endurbótaverkefnum er sinnt af öflugu teymi eignaumsjónar ásamt fjölmörgum traustum verktökum sem Búseti á gott samstarf við. Starfsmenn eignaumsjónar eru sex talsins. Íbúaskiptum fylgja jafnan margvísleg viðhaldsverkefni og úttektir auk endurnýjana og verkstjórnar.

Eignaumsjón

Með stækkun fasteignasafns Búseta hafa umsvif aukist þegar kemur að umsjón fasteigna. Átak hefur verið gert í eftirfylgni og gagnavinnslu í gæðakerfi eignaumsjónar, sem tryggir rekjanleika upplýsinga og að eftirfylgd verkefna sé í föstum skorðum allt til verkloka. Verkbeiðnir sem berast eru af fjölbreyttum toga og kemur sér vel fyrir félagið að vera með fjölhæfa einstaklinga til að glíma við verkefnin. Verkbeiðnum fækkaði eilítið milli áranna 2022 og 2023. Það er vísbending um að viðhaldi hafi verið vel sinnt síðustu misserin.

Þróun og nýframkvæmdir

Á árunum 2018-2023 bættust í fasteignasafn Búseta samtals 599 íbúðir. Auk þess eru nú í byggingu 88 íbúðir á vegum félagsins, við Hallgerðargötu og Eirhöfða í Reykjavík.

Hvað skiptir máli þegar Búseti byggir?

Lykilatriði í uppbyggingarverkefnum Búseta er að velja aðferðir og byggingarefni sem standast tímans tönn. Hérlendis er það tiltölulega óvanalegt að byggingaraðili fylgi byggingum eftir sem rekstraraðili en slík er raunin hjá Búseta. Einnig er unnið markvisst að deililausnum og hönnunarútfærslur eru samnýttar og betrumbættar jafnt og þétt milli byggingarverkefna. Því er til staðar sterkur hvati hjá félaginu að byggja hagkvæmt til langs tíma en félagið býr vel að áratugalangri reynslu í rekstri bygginga.

„Markvisst er unnið að deililausnum og hönnunarútfærslur eru samnýttar og betrumbættar jafnt og þétt milli byggingarverkefna.”

Eitt það mikilvægasta í rekstri bygginga er að tryggja góða einangrun, loftgæði og heilnæma innivist en öll þessi atriði fylgjast að. Búseti notar sérstakan öndunardúk milli útveggjaeinangrunar og klæðningar í nýbyggingarverkefnum sínum. Dúkurinn varnar því að raki komist að steypunni sjálfri og dregur úr líkum á myndun kuldabrúa. Það skiptir máli að vanda valið þegar kemur að innviðum fasteigna. Búseti leitast við að kaupa til nýbyggingarverkefna umhverfisvottaðar og endingargóðar vörur með líftímanálgun að leiðarljósi.